Wednesday, September 17, 2008

Áðan sá ég virðulegan araba með þykka Hitlers mottu. Hann hefur verið að raka sig og hugsað... hmmm hvað get ég gert til að vera öðruvísi. Hey það er enginn með svona bursta á efri vörinni... I´ll be unique. Hugsið ykkur sjokkið þegar hann flettir einhvern tíma á History Channel og sér der fuhrer í full swing með slefi og öllu. Laßt uns niemals der Pflicht vergessen, welche wir auf uns genommen haben! Kannski hatar hann bara gyðinga. 

Annars er vinstri umferðin hérna alls ráðandi. Meira að segja rúllustigarnar eru öfugir... Maður fer upp vinstra megin! Nema í Topshop að mig minnir... enda mætti ég skota sem reyndi að labba á móti mér þegar ég kom niður. 

Svo eru menn ekkert sérstaklega mikið að þvo sér um hendurnar eftir að hafa skilað bjórnum. Yfirleitt bara aðeins að laga hárið... luuvly...

4 comments:

Anonymous said...

Ohhh, alveg ertu yndislegur! Á hvaða tímapunkti komstu að þeirri niðurstöður að istilljerkoffmanually væri hið eina rétta nafn á bloggið þitt?! Það hefði eflaust verið gaman að vera viðstaddur þá ákvarðanatöku!

kveðjur frá A6,
Halldóra

Valþór said...

:) if you only knew...

Anonymous said...

Sæll væni og velkomin á Bretlandseyjar :) Ef þú verður eitthvað á ferðinni til London's hafðu endilega samband.
Góða skemmtun!
Hrund frænka þín

Valþór said...

og sömuleiðis ef þú ert á ferðinni up north... not bloody likely ;)