Thursday, October 30, 2008
like a monkey with a miniature cymbal
Á morgun átti ég að vera í brjálæðislega leiðinlegri verklegri æfingu eftir hádegið. Fólk hefur fengið að skipta dögum með alls konar fölskum ástæðum og svo var komið að ekki var hægt að skipta lengur því það var orðið of mikið vesen. Ég prófaði að vera hreinskilinn og sagði að mig langaði ógeðslega að vera í fríi á morgun. Fékk að skipta á no time flat... Hreinskilni börnin góð, borgar sig. Ég á frídag á morgun. Mjá. Og af því tilefni dönsum við og förum á James Bond. Aaaú.
Wednesday, October 29, 2008
Halloween
Í kvöld var dress rehersal fyrir halloween á föstudag. Man ó man... Ég er búinn að grafa djúpa holu. En maður lifir bara einu sinni. Let´s dance...
Saturday, October 25, 2008
Snillingar
Thursday, October 23, 2008
Rigning
Rignir og rignir í Glasgow. Það kemur kannski engum á óvart. Kominn með debit og kreditkort frá HBOS og netið heim. Lífið er ljúft. Hversu mikið mun það einfalda líf mitt að vera með netið heima... Unaður. Í þessari viku er ég búinn að lita sæði, prófa blóðbletti og rannsaka mismunandi pennagerðir. Á morgun eru það blóðslettur (Dexter here I come) og meira sæði. Og partý. Svo er í burðarliðnum að Mugison komi til Glasgow eða Edinborgar... hversu brilliant væri það? Á þegar miða á Okkervil River og Fleet Foxes. Því miður lítur ekki vel út með miða á Sigur Rós. Hjálpið mér fólk.
Thursday, October 16, 2008
Allt í sóma í Oklahoma
Eftir að ég tók upp dr.gunna ráðin sem sóla benti mér á er ég búinn að vera í samfelldu snilldarskapi síðan á föstudag. Ekkert vandamál sem ég rekst á hreyfir við mér. Mikið að gera í skólanum og sósíallífinu... kannski aðeins of mikið sósíallíf á köflum. Einu áhyggjurnar eru að það gæti farið að vanta blóð í áfengið...
Monday, October 13, 2008
Credit crunch
Átti loksins mínútur aflögu í dag til að skunda í banka og stofna bankareikning. Eða reyna það amk. Ætlaði mér að sigla hérna í gegn án þess að stofna bankareikning en það strandaði á internetinu af öllum hlutum. Renndi mér í HSBC því Steini félagi minn hafði sagt mér að það hefði gengið auðveldlega í gegn hjá honum. Not so much with me. Í fyrsta lagi þarf að bóka tíma til að stofna reikning. Í öðru lagi er ekki laus tími fyrr en á þriðjudag í næstu viku! Eruð þið að kidda mig? Ég gæti stofnað tíu reikninga heima á tíu mínútum. Hann sagði að þetta væri útaf "ástandinu". Ég spurði hann hvort ég fengi hraðari þjónustu annars staðar. Þá glotti hann og sagði að það væri örugglega ekki mikið að gera í RBS og HBOS Halifax... Ouch.
Thursday, October 9, 2008
CSI: Glasgow
Nenni ekki að tala meira um peninga. Búinn að vera í mjög stífum verklegum æfingum í vikunni. Einum of mikið á köflum. Í gær var ég að bera saman tool marks og herre gúd hvað það er erfitt. They sure make it look easy on TV... Þó að ég væri með för sem ég vissi að væru gerð með sama verkfæri gat ég stundum ekki fengið þau til að passa. Helvítis CSI kjaftæði. En auðvitað væri þetta ekkert gaman ef þetta væri auðvelt. Líka búinn að vera í alls konar þráða æfingum... samanburður og ljóseiginleikar þráða. Massa nördó. Annars er ég búinn að komast að því að Taggart er að hluta tekinn upp í skólanum hjá mér. Byggingin mín er Maryhill Police Station. "There´s been a murder!"
Tuesday, October 7, 2008
Proper fucked
Þegar ég reyndi að nota kreditkortið mitt í dag kom upp gluggi á skjánum hjá afgreiðsludömunni "call your bank"... uuu frábært?
Sunday, October 5, 2008
k-list celebs
Jeminn. Sérstakur gestur á stúdenta"pöbbnum" (sem er actually sjö staðir í sömu byggingu) á þriðjudaginn er Toadfish úr Neighbours. Hversu mikið Office er það?
Alive and well
Ég get með gleði í hjarta sagt að mér líður mun betur en gengisvísitöluni. Búið að vera fínt í skólanum þó nú sé þetta að byrja fyrir alvöru. Fór á þannig áhugaverðan fyrirlestur á föstudaginn að mér leið eins og ég væri útúrspíttaður eftir tímann. Djöfull fíla ég þegar fólk kann að tala. Fórum eftir skóla á pöbbinn og svo út um kvöldið. Fínir krakkar þó ég sé í fyrsta sinn einn af þeim elstu. En þau héldu að ég væri 23 svo það er í lagi :) Þau geta líka drukkið sem er gott. Tölvan er batteríslaus svo ég er farinn út með skoskan morgunverð í maganum.
Wednesday, October 1, 2008
La vida loca
Fínt að vera byrjaður í skólanum. Gengisvísitala ekki svo fín. Billjón verklegar æfingar fyrstu önnina. Bera skemmtilega titla eins og Semen Confirmatory Tests, Bloodsplash og Fingerprint Enhancement and Recovery. Hafi maður ekki verið nörri fyrir...
Búinn að spjalla við slatta af liði. Kvikindi alls staðar að... USA, kanada, kýpur, indland, hong kong, botswana, suður-ameríka, þýskaland, england... Ekki búinn þó að hitta neinn skandinava sem er svo sem bara fínt. Erum 37 í bekknum að ég held. Hef mest spjallað við kana og kanadamenn enda þjóðir sem eru ansi opnar. Er ekki að sjá fyrir mér mikið hangs með asíubúunum því þeir eru því miður ansi lokaðir, enn sem komið er alla vega. En þetta er fjölbreyttur hópur en reyndar eru bara 9 strákar... women are taking over the world.
Staffið er mjög næs og allt er brjálæðislega skipulagt. Ágætis tilbreyting frá íslensku "reddast" aðferðinni. Þessi vika verður annars frekar róleg.
Monday, September 29, 2008
Reporting live from Drizzle City
Var að fá tölvupóst frá Glitni með yfirskriftinni Þarf ég að hafa áhyggjur? Opinn fjármálafundur og ráðgjöf. Held að þeim veiti ekki af ráðgjöfinni sjálfum bara... andskotans.
Skólinn byrjar á morgun. Fínt að byrja enda er ég búinn að fá nóg af því að vera túristi. Farinn að heyra í Íslendingum á hverju horni hérna sem barma sér yfir íslensku krónunni milli þess sem þeir hlaupa með innkaupapoka uppá hótel. Ísland, bezt í heimi.
Byrjað að rigna aftur. Jíha. Lopapeysan kemur sér vel.
Friday, September 26, 2008
Wednesday, September 24, 2008
Monday, September 22, 2008
Mjánudagur
Skráði mig í skólann í dag, aðeins rykugur eftir gærkvöldið. Stóð í biðröð í um tvo tíma. Hreint helvíti en gott að vera búinn með þetta. Nú getur restin af vikunni farið í reddingar áður en ég byrja svo á fullu í næstu viku. Myndin í stúdentaskírteininu er alveg eins og myndirnar sem birtast af öllum gaurum sem hafa klikkast og skotið allt í rot í skólanum sínum. Frekar shaky. Get svarið að sumir af krökkunum sem voru að skrá sig voru ekki eldri en brauðið síðan í gær.
Saturday, September 20, 2008
I´m in baby
Flutti inn í íbúðina í gær eftir pínku vesen. Þegar ég var kominn inn og horfði á allt draslið tók ég upp símann og hringdi í Sólu. Tuttugu mínútum síðar var ég kominn uppí lest á leið til Edinborgar. Sóla bauð mér í mat, eitthvað ég hef aðeins heyrt um og lesið á prenti og hafði beðið eftir. Sóla skilaði sínu og vel það! Snillingur, takk fyrir mig. Fórum líka á fína tónleika á The Lot og sáum Windlestray.
Nú bíða innkaup og átján þúsund lítil vandamál. Ætli fyrsta mál á dagskrá sé ekki að kaupa klósettpappír :) Heimili fúnkerar varla lengi án hans.
Wednesday, September 17, 2008
Áðan sá ég virðulegan araba með þykka Hitlers mottu. Hann hefur verið að raka sig og hugsað... hmmm hvað get ég gert til að vera öðruvísi. Hey það er enginn með svona bursta á efri vörinni... I´ll be unique. Hugsið ykkur sjokkið þegar hann flettir einhvern tíma á History Channel og sér der fuhrer í full swing með slefi og öllu. Laßt uns niemals der Pflicht vergessen, welche wir auf uns genommen haben! Kannski hatar hann bara gyðinga.
Annars er vinstri umferðin hérna alls ráðandi. Meira að segja rúllustigarnar eru öfugir... Maður fer upp vinstra megin! Nema í Topshop að mig minnir... enda mætti ég skota sem reyndi að labba á móti mér þegar ég kom niður.
Svo eru menn ekkert sérstaklega mikið að þvo sér um hendurnar eftir að hafa skilað bjórnum. Yfirleitt bara aðeins að laga hárið... luuvly...
Tuesday, September 16, 2008
Íbúðamál að komast á hreint. Sat á skrifstofunni á leigumiðluninni áðan og leit í kringum mig og fattaði að ég sat í settinu á The Office. Flyt sennilega á föstudag. Fínasta fólk sem vinnur þarna. Þarf að vísu að segja ha? eftir aðra hverja setningu hjá einni skoskri en önnur er áströlsk svo hún getur túlkað.
Gisti fyrstu dagana á hosteli sem var... svo sem allt í lagi. Að vísu sást í gormana í gegnum lakið og fyrir mann með enga einangrun er það indælt. Svo var WD40 lykt í stigaganginum og járnskápur inná herberginu en hey... Flutti svo á hótel sem er stórfínt og sæmilega ódýrt.
Á laugardag fór ég svo að skoða þessa íbúð sem ég er að fara að flytja í. Hitti Frank og skildi ekki orð af því sem hann sagði. Eða þannig. Hann er retired strætóbílstjóri. Gekk ekki beinlínis vel að komast inn í íbúðina. Komumst klakklaust upp á þriðju hæð og þar mætti okkur talnalás til að komast inn á ganginn sem Frank hafði ekki aðgang að. Komust inn þegar íbúi hleypti okkur inn á ganginn. Þá komumst við ekki inn í íbúðina sem var með þremur lásum. Þá hringdi Frank í Graham í áttunda sinn og hann kom og loks komumst við inn. Fer þá ekki þjófavörn í gang sem enginn var með kóda fyrir. Brjálaður hávaði og ég hlaupandi um íbúðina eins og þjófur að líta í kringum mig. Er þarna í ærandi hávaða í nokkrar mínútur og hendi 100 pundum í Frank til að taka íbúðina frá og fer svo út og skil þá eftir í hávaðanum. Hvernig þessi sena endaði veit ég ekki. Vona bara að fall sé fararheill í þessari íbúð.
Eftir viku í Glasgow má alhæfa. Strákar eru annað hvort stífgelaðir með greiðuför eða að missa toppinn, nema hvoru tveggja sé. Ekki gott lúkk. Allir reykja. Ilmvatn er notað í staðinn fyrir sápu. Svo er ótrúlega mikið af litlum gaurum hérna. Fíla mig einstöku sinnum bara hávaxinn. That´s a first.
Hér rignir endalaust.
Monday, September 15, 2008
Taka 2
Spurning um að reyna þetta aftur. Byrja smátt. Eitt hef ég lært á fyrstu dögunum í Glasgow. Frankie Boyle er fyndinn. Jútjúbið hann.
Subscribe to:
Posts (Atom)
